|
|
05.09.2006 14:15:13 / Doddi
Good day good day
Skólinn byrjaður aftur, rólega lífið Verður kannski
strembið hjá mér undir lok skólaársins en núna er þetta bara smooth
sigling.
Hringdi einhver stelpa í mig í gær og spurði mig hvort hún mætti
taka við af mér í skólaráði, kom mér frekar mikið á óvart að
einhverjum langi það mikið í þetta jobb að hringja og biðja um það
því ég er búinn að sitja þarna í einhver 3 ár því enginn annar
vildi taka þetta að sér. En ekkert nema gott um þetta að segja.
Búinn að minnka helling við mig á galito, verð að klára þessa
önn með stíl og nenni ekki að taka einhverja sénsa, verð vonandi
bara í rólegheitunum 
Er skráður í stæ503 hjá bjarnþóri, búinn að mæta í 2 tíma og er
strax búinn að fá uppí kok. Mórallinn í raf deildinni er oftast
bara einsog á rólegum vinnustað, maður fær verkefni og klárar það á
sínum tíma bara, enginn að amast í manni þó maður fari og fái sér
að éta eða svari í síman eða eitthvað því það breytir einfaldlega
ekki neinu um verkefnið. En að koma aftur útí bóknámsbrautar
móralinn er alveg áskrift að þungyndi, þetta er svo strangt (og
afhverju?) og svo þvingað að það liggur við að ég kafni við að
sitja þarna. Ef það væri svona mórall á vinnustaðnum mínum mundi ég
segja upp á staðnum.
Hverjum datt í hug sú regla að kennarinn ráði því hvort maður
fari á klósettið? Hvern andskotan kemur það honum við? en
jæja..
Kominn á nýjan bíl, yndislega ljótan benz sem litla frænka mín
spurði mig hvort væri líkbíll Nennti ekki þessu véseni að
koma bílunum mínum í gegnum skoðun og vona að þeir fari í gang og
svona þannig að ég keypti bara bíl sem er búið að fara vel með og á
ekkert að fara að klikka, þó það sé erfitt að lofa þannig..
Ætla að fara að koma mér aftur í skólan, túdílú
»
05.07.2006 20:01:24 / Doddi
Vá... hróarskelda er besti staður í heiminum held ég.. liggur
við að fólk fái geislabauga með inngöngumiðanum 
Þetta var liggur við trúarleg reynsla, síðast þegar eitthvað
svona tónlistar furn hafði svona mikil áhrif á mig var þegar ég fór
í fyrsta skipti á dúndurfréttir 
þarna voru saman komin einhverjar 100.000 sálir, svo þétt
pakkaðar saman að ég og palli löbbuðum í sirka 1 og hálfan tíma að
leita að 2 fermetrum til að tjalda á DEGI ÁÐUR en hátíðin
"byrjaði", og ég sá ekki einn einasta mann reiðan eða pirraðan eða
neitt bara, allir bara eitt bros. Þegar maður var að labba í gegnum
mannþröngina þá fékk maður ekki olboga eða bölyrði einsog á íslandi
heldur voru allir uppteknir af því að koma manni greiðlega framhjá
og kölluðu að manni "hav ein godt festival" eða eitthvað því um
líkt og stelpur sem hefðu alveg komist í ungfrú vesturland gengu um
og kysstu hvern sem fyrir varð... bara afþví þær langaði til 
Ekki skemmdi veðrið fyrir.fyrir.fyrir.fyrir utan það að ég brann
í klessu og er rauður einsog rækja og villimannlegur því ég ætla
ekki að raka mig fyrr en á írskum dögum 
Ef einhvern langar í gulllitaðan bimma sem hefur séð fleiri ár
en helmingur skráðra nemenda í FVA þá má hann hirða hann fyrir
kassa af bjór, (no joke, nenni þessu minnst).
Keypti smá glingur handa kvennfólkinu í kringum mig úti, þar á
meðal 2 boli sem ég var að pæla í að kaupa sjálfur en langaði svo
meira að gefa sólu. Er farinn að sjá svolítið eftir því...
En allavega, ég og daði erum búnir að vera að vinna fyrir
fyrirtækið Orkuvirki (ensk. Energy Fortress) sem er með
rafmagnsmálin í stækkuninni í norðurál (sem fær versta stóriðju
hugmynd síðan gullfossarvirkjuninn var og hét..næstum) og það er
heavy fínt, helling að gera og svona, dagarnir hverfa Ágætis
fólk þarna líka, 3 portúgalar og einhverjir rvk-ingar sem eru
flestir klikk í höved en ágætir samt.
Jæja, Portúgal - Frakkaland, laters 
Lag færslunnar : Doddi sveins - Wish you where here, live
2006
»
12.06.2006 11:22:09 / Doddi
smá pása í vinnuni þannig að ég ákvað að setja upp tilkynningu um
að ég er ená hérna einhverstaðar. Tölvan er enþá í messi þannig að
ég nota bara vinnutölvuna í augnablikinu, ótrúlegt hvað það er nice
að hafa ekki tölvuna heima, hún tróð sér alls staðar inn þegar
maður hafði dauðan tíma og svo var ekki séns að komast frá henni
aftur.. Hellingur búinn að gerast frá síðustu færslu, bubba
tónleikar, staffaferð, bíllinn í verkfalli ofl ofl. Nýjustu
fréttirnar eru hins vegar að Haddi var að koma í land, fór út að
borða með honum á laugardaginn á Holtinu, hann var búinn að redda
double dati fyrir okkur (sem ég heyrði samt alveg milljón sinnum að
væri ekki alvöru date en ég tek ekkert mark á svoleiðis rugli  )
en það féll allt upp fyrir því önnur komst ekki og þar með ekki hin
heldur. Ég ætlaði ekkert að fjölyrða um það í vinnuni en Haddi var
búinn að leka því í Gunna þannig að ég fékk ekki frið. Doddi kom
með þá kenningu að það hefðu aldrei verið neinar stelpur í spilinu,
Haddi væri bara að reyna að fleka mig og sagði mér að hlaupa ef
hann mundi svo lítið sem minnast á herbergi.. en það kom ekki til
þess sem betur fer. Ég tók þessu ekki liggjandi eftir að eineltið í
vinnunni magnaðist og hringdi í Evu systur og bað hana að redda
fyrir okkur einsog tvem þrem ofurfyrirsætum en einsog allt var að
ganga þann daginn þá gekk það ekki, þær eru allar komnar með
kærasta eða í london eða eitthvað álíka ómerkilegt. En við fórum þá
bara tveir og það var helvíti fínt bara, tók sælkeraseðillinn sem
eru 5 fyrirfram valdir réttir og það var allt alveg æðislegt nema
foi gras unitið, er ekki alveg að meika það. Kíktum smá stund á
Söru karls og Fanney frí og vinkonur áður en við fórum aftur uppá
skaga. Fór svo í gær með Ingólfi Ágústi, Víði Jónasar og fleiri
rugludöllum að steggja Pétur verðandi mág minn. Vöktum hann í
hringum hálf tólf leitið og drógum hann útí heiðmörk eða einhvert í
M16 lasertag og það var vægast sagt KLIKKAÐ. Víðir var útnefndur
liðsstjóri camo liðsins (AKA mözdu morðingjarnir) því hann var með
bestu Arnold frasana (og þeir fengu sko að fljúga). Þetta var
rosaleg keyrsla og allir voru alveg búnir eftir þetta, ég er enþá
með harðsperrur í lærunum. Víðir var samt það skammsýnn að taka
ekki með sér aukaföt í þetta mission, en það var grenjandi rigning
allan tíman. Hann fékk að launum að klæða sig úr hverri spjör og
standa butt nakid í rigningunni og fara í skíðabuxur af systur ingó
þangað til við komumst heim til péturs þar sem hann fékk lánuð
fleiri föt. Eftir það fórum við á ógeðslegan kínverskan stað þar
sem við átum kjúklingasoð og núðlur úr skítugum skálum með skítugum
hnífapörum og drukkum vatn úr skítugum glösum. Kokkurinn var
subbulegasta tævani sem ég hef séð, haltraði um allt einsog hann
héti Igor og tróð sér inná milli okkar að setja hnífa og gafla
(óumbeðinn) í súpuskálarnar okkar og rétta okkur servéttur með
skítugu höndunum sínum.... nasty shit. Svo fórum við í HR klúbbinn
þar sem ingó var búinn að reyna að redda einhverjum Heavy-weights í
að boxa við pétur, en þeir þola ekki svona steggja júnit þannig að
ingó fór sjálfur í hringinn. Þetta var mest brútal streetfight box
sem ég hef séð og pétur tók gamla takta og buffaði ingo all
svakalega, en ekki án þess að fá nokkra áverka sjálfur. Rosaleg
stemning í húsinu, Halli melló tók lets get ready to rumble og
Víðir var dómari, ég var hornamaður hjá pétri með stólinn og
handklæðið og fötuna og alles. Þetta er allt til á vídjói og
kannski ratar vel ritskoðuð útgáfa í brúðkaupið, aldrei að vita...
En laters þarf að komast í mat
»
21.03.2006 01:14:34 / Doddi
Sofa, vinna, skóli, sofa, vinna, skóli ( ekki endilega í þessar
röð)
Öss, búinn að vera í uppskipun fyrir þþþ undanfarna daga, alveg
monster hvað ég verð þreyttur á þessu. Þetta er einsog gocart í
fleiri tíma stanslaust, lyftarinn hristist og hossast og maður
verður að horfa í allar áttir einsog forvitnasti maður afganistan
til að fá ekki einhvern í hliðina eða god forbid rassinn.
Farinn í hálsinum og öxlunum á því að keyra afturábak, óska
eftir nuddi (nei sæli ekki þú)
Buttt anywho, mig er farið að dreyma heavy mikið undanfarið,
aðalega mat samt því það er aldrei til neitt að borða hérna þegar
ég fer að sofa.
Dreymdi í síðustu nótt að ég og kærastan mín værum í bootcamp
hjá bandaríska hernum og okkur var gefið það hlutverk að finna
liðhlaupa úr flokknum mínum í skógi (sem var skuggalega líkur
skógræktinni). Ég fann hann reyndar ekki því vekjaraklukkan vakti
mig, en ég var búinn að finna ipodinn hans þannig að það var ekki
langt í það 
Dreymir líka reglulega að ég sé í sundi í sundhöllinni, og mig
dreymir líka alltaf sama drauminn um að vera eltur/elta einhvern í
reykjavík, alltaf sömu leið að höfninni. Hefur dreymt þetta síðan
ég var svona 7 ára þannig að ég veit alltaf einhvernveginn í
draumnum hvert þetta liggur, en get aldrei gert neitt í því.
Þessi draumur breytist bara þegar ég fer að sofa heavy svangur
eða þyrstur því þá brýst ég inn í búðir eða matsölustaði og borða
og borða og borða 
Passaði Söndru frænku um daginn í nokkra tíma, held að það sé
það erfiðasta sem ég hef gert í þessum mánuði, ræktin og vinnan
tekin með, þetta var rosalegt. Fötin mín voru öll útí vatni,
jógúrti, rúsínum, serjósi og gúrku, svo ekki sé minnst á gólfið...
öll flöt yfirborð á miðhæðinni, gluggakistur, borð, gólf, ALLT var
þakið í drasli.
Það var bara ekki möguleiki fyrir mig að ráða við þetta
kríli. Eina sem ég vann mér til álits var að ég kom henni
möglunarlaust í útifötinn og útí kerru, en um leið og hún fattaði
að við vorum ekki að fara í göngutúr þá byrjaði sírenan.
Man þetta ekki nákvæmlega en ég held að ég hafi legið uppgefinn
á gólfinu þegar Pétur loksins kom að ná í hana 
jæja ég ætla að koma mér í rúmið, laters
Lag færslunnar: Steppenwolf - Magic Carpet Ride
»
10.03.2006 00:08:39 / Doddi
( ) farið á blint stefnumót
(x) logið að vini/vinkonu
(x) skrópað í skólanum (ha? ég?) (?) horft á einhvern
deyja (ekki séð neinn fara yfir mörkin enþá nei, en hægt og
hægt) ( ) farið til Canada
( ) farið til Mexico
(x) ferðast í flugvél
(x) kveikt í þér viljandi (hehe, þorláksmessa? ) (x)
borðað sushi
( ) farið á sjóskíði
(x) farið á skíði (sem sagt í snjó)
(x) hitt einhvern sem þú kynntist á internetinu (nokkra gaura
sem ég spila með, ekkert djúsí) (x) farið á tónleika
(x) tekið verkjalyf
(x) elskar einhvern eða saknar einhvers akkurat núna
(x) legið á bakinu úti og horft á skýin
(x) búið til snjóengil
( ) haldið kaffiboð (hehehehe) (x) flogið flugdreka
(ég og óli unnum flugdrekakeppni fva fyrir nokkrum árum hvorki
meira né minna) (x) byggt sandkastala
(x) hoppað í pollum
( ) farið í "tískuleik" (dress up)
(x) hoppað í laufblaðahrúgu
(x) rennt þér á sleða
(x) svindlað í leik (bara á sjálfum mér) (x) verið
einmana
(x) sofnað í vinnunni/skólanum (vann við að sofa á kaffistofu í
sementinu, sofnaði í fyrsta prófinu mínu í fjölbraut) (x)
notað falsað skilríki (einu sinni) (x) horft á
sólarlagið
(x) fundið jarðskjálfta
(x) sofið undir berum himni (verslunarmanna helgar aðalega en
samt ekki einvörðungu) (x) verið kitluð/kitlaður
(x) verið rænd/rændur (síðast í desember, 14þ
kalli) (x) verið misskilin/n (ha? ég? skilja mig ekki
allir?) (x) klappað hreindýri/geit/kengúru (geit,
allaveg eina sem var lifandi á meðan á því stóð) (x) farið
yfir á rauðu ljósi/virt stöðvunaskyldu að vettugi
( ) verið rekin/n eða vísað úr skóla
(x) lent í bílslysi
( ) verið með spangir/góm
(x) liðið eins og þú passaðir ekki inn í/þriðja hjól undir
vagni
( ) borðað líter af ís á einu kvöldi
(x) fengið desja vu (kemur fyrir já, en alltaf sjaldnar og
sjaldnar) (x) dansað í tunglskininu (hehe,
jebb) (x) fundist þú líta vel út (sjaldnar en ég hef
dansað í tunglskininu) (x) verið vitni að glæp (jafnvel
framið :
(x) efast um að hjartað segði þér rétt til
( ) verið gagntekin/n af post-it miðum (þið vitið - þessum gulu)
(say whaaa) (x) leikið þér berfætt/ur í drullunni
(x) verið týnd/ur
(x) synt í sjónum
(x) fundist þú vera að deyja (jebb, dabbi var með mér
)
(x) grátið þig í svefn :\\
(x) farið í löggu og bófa leik
(x) litað nýlega með vaxlitum
(x) sungið í karaókí (bara í partyi, ekki á alvöru) (x)
borgað fyrir máltíð eingöngu með smápeningum (máltíð verandi
langloka og kók) ( ) gert eitthvað sem þú lofaðir
sjálfri/sjálfum þér að gera ekki (ehh, ekki nýlega held
ég) (x) hringt símahrekk (síðast í DV þegar ég var í
þriðja bekk) (x) stungið út tungunni til að ná
snjókorni
(x) dansað í rigningunni
(?) skrifað bréf til jólasveinsins (ekki alveg viss, mamma veit
það ábyggilega)
( ) verið kysst/ur undir mistilteini
(x) horft á sólarupprásina með einhverjum sem þér þykir vænt um
(x) blásið sápukúlur
(x) kveikt bál á ströndinni (good times, good times)
(x) komið óboðin/n í partý (ekki óvelkominn samt ) (
) verið beðin/n um að yfirgefa partýið sem þú komst óboðin/n í
(x) farið á rúlluskauta/línuskauta
( ) hefur einhver óska þinna ræst (engin stór nei) (x)
farið í fallhlífastökk (Hittumst handan hemru frikkz)
( ) hefur einhver haldið óvænt boð fyrir þig (nei, koma svo
fólk )
( ) pissað úti (ojj bara nei) |
»
07.03.2006 02:17:50 / Doddi
Söpp jó
Langt síðan ég bloggaði síðast, greinilega bara stelpur sem lesa
þetta blogg, eða allavega bara stelpur sem vilja að ég haldi því
áfram. En who needs em 
Fór í bíó um daginn með hadda, varð mér til skammar á kínverskum
veitingarstað fyrir sýninguna með því að sleppa mér í hlátri yfir
konu sem vann þarna, hef ekki lent í öðru eins síðan ég var lítill,
bara gatt ekki hætt að hlægja að grey konunni sem gerði ekkert
annað af sér en að tala skringilega :/ og bara til að hafa það á
hreinu þá var haddi ekkert betri ! minnti mig alveg rosalega á
vídjóið af þarna búmerang þættinum sem var í tísku rétt fyrir
áramót.
Fékk helling af símtölum/sms-um um helgina varðandi hvað bíllinn
minn var að gera í mosó, sagan er sú að ég var að skutla yngstu
syst í fermingarundirbúning fyrir sunnan og bíllinn minn sem er
sannkristinn sagði bara nei við því að taka þátt í þessari vitleysu
og reyndi að fremja sjálfsmorð.
Ég og sóla tókum smá gönguferð í mosó, sá einhverja bíla sem ég
þekkti og heilsaði þeim, sá samt engan á leiðinni heim á skaga
þannig að ég var ekkert að reyna að stoppa þá. Eftir svona 3
mínútna göngu þá hringdi katrín í mig og spurði mig hvað ég væri að
gera þarna, þá höfðu hún og sara keyrt fram hjá mér fyrir nokkrum
mínútum en þær héldu að ég væri að hitta stelpu í mosó og hefði
lagt þarna til að láta ekki sjá bílinn minn nálægt heimili
hennar.... held að það mætti alveg fara að setja takmarkanir á
hversu margar sápur má horfa á á einni ævi 
Þær skutluð mér s.s. heim (takk sara mín :*) og katrín sýndi mér
nýja tattúið sitt (mynd af henni í blaðinu í dag by the way) og
sara fékk sér gat í naflan, alveg kreisí að hleypa þeim einum í
bæinn.
Fór í frumsýningarparty á laugardaginn, fékk nokkur vel valin
flashbacks í því, langt síðan ég hef farið í rústparty og hvað
þá þar sem bara tæpur helmingur var ekki að spúa upp verðmætum
bjór og matvælum. MAN hvað ég er feginn að hafa ekki þurft að þrífa
þennan stað.
Mamma og pabbi komu frá þvottabæ nálægt kólembíu í sameinuðu
ríkjum vínlands í morgun, fá stóran mínus fyrir að hafa ekki keypt
örðu af nammi í fríhöfninni en smá plús fyrir að hafa keypt nokkrar
terry pratchett fyrir mig og sólu og alveg eðal safn af nostralgíu
dvd (t.d gremlings og the dark crystal)
En ég er sáttur við lífið, tilveruna, hadda og bara
flesta.
Gúdnægt
lag færslunnar ber þann frumlega titil "lag 14" og er með
nýdönsk, hef ekki hugmynd um hvað það heitir í alvörunni, nenni
ekki að gá 
»
11.02.2006 01:34:37 / Doddi
hér með klukka ég, kítla, og bara allt hana Unni smára, því hún
er búinn að vera svo útundan 
Mátt svara öllum svona trend spurningalistum í heiminum
núna!
GO WILD !!!111!
»
08.02.2006 19:54:04 / Doddi
nýr dagur, nýtt trend, thx edit
4 störf sem ég hef unnið um æfina
1. Sementið - lyftara, fylla á bíla, útskipun
2.Galito-67 - Sendill, hamborgarasnúari, bakari, ofnamaður,
símadama, uppvask, kokkur, allsherjar everything.. nema
servétta
3. Uppskipun fyrir gísla jóns
4. draga í hús með pabba in the olden days
4 bíómyndir sem ég get horft á aftur og aftur
1. Starship Troopers
2. Almost famous
3. Dazed and confused
4. Anchorman
4 staðir sem ég hef búið á
1. Vesturvallagata
2. Hringbraut
3. Nökkvavogur
4. Háteigur
4 sjónvarpsþættir sem mér líkar
1. Lost
2. Who´s line is it anyway
3. Það var lagið hehe
4. American Dad
4 síður sem ég skoða daglega (fyrir utan blog)
1. http://www.leikur1.is/playflash.php?gameID=168
2. http://www.illwillpress.com/vault.html
3. http://www.wulffmorgenthaler.com/
4. http://www.weebls-stuff.com/
4 staðir sem ég hef heimsótt í fríum
1. Algarve portugal
2. Tenerife kanarí
3. Milan ítalíu
4. Kävlinge svíþjóð
4 matarkyns sem ég held uppá
1. Margarita
2. Lasagne a la mamma
3. Nautalund, enþá blæðandi, engin sósa
4. hrefna
4 staðir sem ég vildi heldur vera á núna
1. Vatikanið
2. Sturtu
3. Hróarskeldu
4. Ástralíu, anywhere
4. Bloggarar sem ég klukka
1. Eva sys
2. Katrín
3. Davíð
4. Haddi bakan
»
03.02.2006 00:38:09 / Doddi
sama regla og síðast, hver kannast við topicið ólíklegt að
arnar kannski við þennan texta reyndar, hehe
Var að klára að vinna, skrítinn vinnudagur.. malla púllaði
ógeðslegan hrekk á mig, var með vont bragð í munninum alla vaktina
þó að ég æti heilan pakka af mentos : / MAN hvað ég á eftir að
hefna mín ! !
var plataður í að vinna á laugardaginn, bara heimsending og
maðurinn sem var ráðinn til að ég og dabbi gætum fengið helgarfrí
verður bara sendill. iss piss
Sæli fór veikur heim í kringum sjö og jón þruma (HERO IN
DISGUISE) tók við af honum.
Júlli er ekkert betri en ég með að láta plata sig í vinnu, hann
er að fara að mæta klukkan fjögur í nótt að gera snittur þangað til
hann þarf að mæta í skólan og svo mætir hann að baka beint úr
skólanum. Greinilega kominn inní vinnuskipulagið okkar 
Bjargey fékk afmælisgjöfina sína áðan, hehe, rosalega stoltur af
því framtaki mínu, enda barbershop quartets svo málið í dag (einsgo
kom fram í fyrri færslu hérna fyrir neðan)
Ég á rómantískt date við hadda á morgun ef hann verður ekki of
upptekinn, getum samt ekki farið á galito einsog við ætluðum þannig
að höfuðborgin verður líklega fyrir valinu, spurning hvernig við
ferðumst þangað og til baka aftur.. en það er seinni tíma vandamál,
svo er strætó líka kominn hingað og alles.
Laterrrrrrrrr
Lag færslunar: Bianco - Happy birthday
Ps.special thanks til jófríðar fyrir að aðstoða við samsærið
mitt 
»
01.02.2006 15:06:44 / Doddi
Ég get ekki ákveðið mig hvað ég ætla að verða þegar ég verð stór
og eftir miklar umræður um það við systur mínar sem eru næst mér í
aldri þá hef ég ákveðið að verða bara allt.
Ég ætla að byrja á lyfjafræði og finna upp pillu þannig að ég
lifi að eilífu þannig að ég geti lært allt.
Fer í það beint eftir rafvirkjunina.
Bam búm, straight to the moon!
Lag færslunnar: Tom Waits - I dont want to grow up
»
31.01.2006 20:06:37 / Doddi
Síðasta helgi var bara helvíti nice, náði loksins að horfa á
Victorias Secret með braga og katrín kjútípæ og það var awesome!
Ætla að verða nógu ríkur einhvern daginn til að mæta á eina svona
sýningu, 2056 eða eitthvað með þessu áframhaldi..
Anywho, ætluðum svo á mörkina en það var BIÐRÖÐ fyrir utan hana
og mér finnst ekki það geðveikt að hanga í myrkri og reyk með
sveittum pólverjum hlustandi á næntís hallæris að ég fari að hanga
í roki og rigningu fyrir utan.
Þannig að við fórum bara hingað heim, dabbi og birkir komu
fljótlega eftir það og frikki kíkti smá líka, spekkuðum bara
american dad og höfðum það nice.
Lánaði dabba flakkarann minn þegar hann fór til að fá nokkra
þætti og svona hjá honum og er ekki enþá kominn með hann aftur
þannig að ég er alveg tónlistarlaus og fatlaður, er reyndar með 5
lög núna sem er framför frá 3 síðast.
Lög færslunnar: Otis Redding - Sitting on the dock of the bay
& Four Tops - Walk away Reneé
Þetta eru þau lög sem hafa bæst í safnið mitt
»
19.01.2006 00:43:29 / Doddi
100 kall fyrir þann sem veit úr hvaða lagi titillinn er, bannað
að googla (og nota aðrar leitarvélar)
man hvað ég er þreyttur, held að ég hafi notað alla orkuna fyrir
vikuna í gær bara.. vonandi ekki, þá þarf ég að overdose-a á magic
og xorku næstu daga. Held að maginn á mér höndli það ekki.
Hafliði var veikur í dag, í fyrsta sinn síðan ég byrjaði í
rafvirkjun held ég. Hann fékk reyndar í bakið fyrir ári síðan en ég
tel það ekki með.
Skelfilegir þessir raf kennarar, aldrei veikir. Held að Hjálmur
hafi misst út í mesta lagi 4 daga vegna veikinda á minni veru á
rafbraut og Hörður kallinn eitthvað svipað, þangað til hann fékk
móður allra veikinda karl anginn.
Flemming og pabbi eru svona í meðallagi sem betur fer maður
verður að fá smá pásur.
Haukur óli er með mér í tímum núna, honum var laumað inn undir
radarinn hans Hjálms. Held að þeir séu skotnir í hvor öðrum.. þeir
eru allavega voðalega skrítnir í kringum hvorn annan.
Hitti braga í kvöld, í fyrsta sinn síðan ég veit ekki hvenar..
langt inní síðasta ár allavega. Ef vaktirnar mínar hittast
rétt á og ég fæ frí á laugardag þá held ég að það sé ekkert annað
en bara Victory Secret og bjór, og smá gusgus á eftir 
later...
Lag færslunar: Kings Singers - Lady Madonna
Barbershop quartets eru svo málið í dag 
»
17.01.2006 16:59:02 / Doddi
Ég sakna jeppans hennar ásu alveg rosalega í svona veðri
Sem betur fer eru samt fleiri á svoleiðis og ég náði að
húkka mér far með sæla eftir skóla og við fórum að jeppakallast

Keyrðum yfir snjóskafla, drógum gamlar konur upp úr sköflum,
spóluðum í hringi og lögðum karlmannlega, alveg heavy gaman 
Hitti systur afa dodda áðan og hún lofaði mér pönnukökum á
himnaríki, þannig að við sæli urðum heavy svangir og fórum og
fengum okkur sjeik, ekkert annað að gera í svona blíðu 
Ágætis byrjun á degi, ágætis byrjun á viku, er á undan áætlun í
skólanum í fyrsta sinn síðan í 6 bekk og er ekki búinn að fá eitt
skróp síðan ég kom heim, kannski ég sé loksins búinn að hrista af
mér skammdegisþunglyndið 
Well, vinna...
Lög færslunnar: Elton john - tiny dancer, ingram hill- more than
a feeling og gugus - david
Þau fá þennan heiður því þetta eru einu 3 lögin í tölvunni minni
at the moment því litla systir mín stal flakkaranum..
»
13.01.2006 00:12:11 / Doddi
Öss, þvílík keyrsla... ég er í dag í fyrsta sinn edrú síðan að
morgni 29 desembers, s.s. fyrsti dagurinn á þessu ári þar sem ég sé
stelpur ekki alveg jafn sætar og er nokkuð viss um að ég geti barið
alla breta sem ég hitti 
Þeir sem þekkja mig vita hvað ég er ofbeldisfullur undir
áhrifum, veit allavega um eina birkihríslu á akureyri sem verður
aldrei söm aftur.
Ekki það að það hafi verið eitthvað vésen með bretana, þvert á
móti þá á ég núna besta vin í middlesbrough sem er í félagsskap sem
kallar sig því gagnkynhneigða nafni "The butter boys" og segir að
allt england, meira að segja chealse séu hræddir við þá.
Held samt að hann hafi verið snar ruglaður, en hann gaf mér
pizzu 
Nú er það bara að telja saman skaðan og reyna að drullast til að
vakna í skólan á morgun, því nú heldur lífið áfram einsog
venjulega..öss
»
29.12.2005 01:53:42 / Doddi
Er ekki við, þeim sem nauðsynlega þurfa að ná í mig er bent á
tengilið minn á jörðinni, benedikt sextánda.
Tenerife hell yeah
»
Síður: 1 2 3
|
|